Fugl viku 2 er snjótittlingur: Vetrarfuglinn okkar
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Miðvikudagur, 13. Janúar 2010 11:28
SnjótittlingurSnjótittlingur er einkennisspörfugl á auðnum og í fjallendi.  Í vetrarhörkum sækja snjótittlingar í stórum hópum þangað sem þeim er gefið en þeir eru fræætur og er hveitikorn og kurlaður maís, það sem selt er í verslunum sem smáfuglafóður, í uppáhaldi hjá þeim.  Á sumrin er karlinn snjóhvítur nema svartur á baki og vængbroddum og kallast þá sólskríkja.  Flug snjótittlings er hratt og bylgjótt. Hann tyllir sér á steina, þök og víðar, þó sjaldan í tré. Er afar félagslyndur á veturna en á sumrin eru pör eða fjölskyldur saman.  Söngurinn er hljómþýður og syngur fuglinn bæði sitjandi og á flugi. Á veturna gefur hann frá sér ómþýtt tíst.  Snjótittlingur er algengur varpfugl til fjalla og á hálendi en strjáll á láglendi. Finnst þó í grýttu landi og klettum við ströndina, svo og í eyjum. Hreiðrið er vandlega ofin karfa í glufu eða sprungu í bergi eða í hlöðnum vegg.  Hluti stofnsins hefur vetursetu í Skotlandi og grænlenskir fuglar eru far- og vetrargestir hér.