Fugl vikunnar er gráþröstur: Frekjudallurinn í garðinum
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 26. Janúar 2010 14:02
Gráðþröstur: Ljósmynd Sigurður Ægisson.Gráþröstur er vetrargestur hér og sækir hann í garða þar sem fuglum er gefið.  Gráþrestir eru sérstaklega sólgnir í epli og perur og er ekki óalgengt að stakir þrestir leggi undir sig heilu garðana og matinn þar og verji fóðrið af mikilli hörku.  Þá hrekja þessir frekjudallar aðra þresti í burtu hvort sem það eru tegundarsystkini, skógarþrestir eða svartþrestir. Þeir skipta sér þó lítið af smærri fuglum og hafa ekkert í starana sem ferðast um í hópum.  Gráþröstur er líkur skógarþresti en töluvert stærri og með lengra stél. Hann er grár á höfði og gumpi, rauðbrúnn á baki og vængjum og gulleitur með dökkum dröfnum á bringu og síðum en ljós á kviði. Stélið er langt og svart.  Hann er algengur haust- og vetrargestur um land allt en mikil áraskipti eru af komum hans. Gráþrestir hafa orpið nokkrum sinnum á síðustu áratugum víða um land.  Hann er skógarfugl og lifir í barrskógabeltinu í Evrópu og Asíu.