Áskorun Fuglaverndar vegna vetrarveiða á gæsum
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Laugardagur, 13. Febrúar 2010 00:00

Þann 8. febrúar 2010 sendi Fuglavernd umhverfisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur eftirfarandi áskorun vegna vetrarveiða á gæsum og sölu á villibráð.

Umhverfisráðherra
Svandís Svavarsdóttir
Umhverfisráðuneytinu
Skuggasundi 1
Reykjavík

Varðar vetrarveiði á gæsum og sölu á villibráð

Umhverfisráðherra Svandís Svavarsdóttir

Undanfarin ár hefur borið talsvert á því að grágæsir hafi vetursetu hér á landi sérstaklega á suðurlandi en einnig eitthvað í öðrum landshlutum.  Þessir nýju hættir eru ef til vill samfara hlýnandi veðráttu og aukinni kornrækt. Þær voru til skamms tíma eingöngu farfuglar, fyrir utan stofn sem kenndur er við Reykjavíkurtjörn og dvelur á Innnesjum og Suðurnesjum á vetrum.  

Núverandi veiðitími miðar við að gæsirnar færu allar af landi brott á haustin en honum líkur, eins og andaveiðitímanum, 15. mars.  Það er skoðun stjórnar Fuglaverndar að í ljósi breyttra hátta gæsanna þurfi að endurskoða þennan veiðitíma.  Friða þarf vetrargæsirnar en mikið er herjað á þær jafnvel af magnveiðimönnum sem veiða gæsir til sölu.  Við leggjum til að gæsaveiðum verði hætt 1. nóvember.

Jafnframt vildum ítreka beiðni okkar til umhverfisráðherra að beita sér fyrir sölubanni á villigæsum, en sú umræða hefur marg oft komið upp í umræðunni um blesgæsina og að mati Fuglaverndar eina leiðin til að friðun blesgæsarinnar skili tilætluðum árangri.



Reykjavík 8. febrúar 2010
F.h. Fuglaverndar


Hólmfríður Arnardóttir, framkvæmdastjóri
Jóhann Óli Hilmarsson, formaður