Fugl vikunnar er bjartmáfur: Vetrargestur norðan úr höfum.
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 16. Febrúar 2010 10:21
Bjartmáfur kemur hingað á veturna frá varpstöðvum á Grænlandi en hann verpur einnig á Baffinslandi og nálægum Íshafseyjum Kanada.  Hann heldur sig mest með ströndum fram, oft með öðrum máfum í höfnum, við ræsi eða þar sem æti er að finna og er hann oft einn algengasti máfurinn í hinum árlegu vetrarfuglatalningum sem Náttúrufræðistofnun skipuleggur um land allt um jólaleytið.  Bjartmáfar sjást sjaldan á landi, þó stundum á tjörnum og sjávarlónum og þá helst síðla vetrar eða snemma vors.  Hann er líkur hinum alíslenska hvítmáfi en er minni og fíngerðari með hnöttóttara höfuð og brattara enni, frábrugðið flötu höfði hvítmáfs. Búningar og búningaskipti fullorðinna og ungra bjartmáfa eru svipuð og hjá hvítmáfi.  Vængir bjartmáfs eru lengri og mjórri en hvítmáfs og ná lengra aftur fyrir stélið. Hann virðist léttari og fimari á flugi og er mun léttari á sundi en hvítmáfur og minnir á fýl. Afturhlutinn vísar á ská upp á við en á hvítmáfi virðist hann láréttur.  Bjartmáfurinn velur sér varpstaði líkum hvítmáfinum. Vörpin eru hátt í bröttum fjallshlíðum en einnig á lágum eyjum.  Hann hefur aldrei fundist í varpi hér á landi.