Daníel Bergmann
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Miðvikudagur, 03. Mars 2010 10:35


Ég er fæddur 1971 í Reykjavík þar sem ég hef að mestu alið manninn en hef búið í Stykkishólmi undanfarin ár. Ég starfa sjálfstætt og einna helst á sviði ljósmyndunar, grafískrar hönnunar og ferðaþjónustu. Starf mitt er nánast allt tengd náttúru Íslands, þá sér í lagi ljósmyndunin en þar hef ég sérhæft mig í íslenkum fuglum og náttúru.

Ég sat í stjórn Fuglaverndar frá 2001-2009, frá 2003 sem gjaldkeri félagsins. Ég hef haldið utan um útgáfumál Fuglaverndar, m.a. ritstýrt  tímaritinu Fuglar frá því það kom fyrst út á 40 ára afmæli Fuglaverndarfélagsins árið 2003. Nú eru tölublöðin orðin sex talsins og vona ég að það verði framhald á þeirri útgáfu þar sem Fuglar eru helsta málgagn fugla og fuglaverndar á Íslandi.

Ég gaf ekki kost á mér til áframhaldandi stjórnarsetu á síðasta aðalfundi en hef ákveðið að gefa nú kost á mér aftur. Sem stjórnarmaður myndi ég halda áfram þeirri uppbyggingu á Fuglavernd sem ég hef tekið þátt í að móta og hrinda í framkvæmd. Áhersla þeirra stjórna sem ég hef setið í hefur verið að efla félagið innanfrá og styrkja stoðir þess. Þar vegur þungt aukning félaga sem hefur verið rúm 100% frá því ég kom fyrst í stjórn árið 2001. Fjölmennt félag skapar sterkari rekstrargrundvöll og félagafjöldinn veitir aukið vægi þegar Fuglavernd beitir sér í náttúruverndarmálum. Ég tel að sú sigling sem félagið hefur verið á undanfarin ár sé farsæl og þarfnist ekki meiriháttar stefnubreytingar. Lykilþáttur í vexti félagsins hefur verið áhersla á fræðslu- og útgáfustarf og þar, sem og í öðrum málaflokkum, tel ég mig geta orðið Fuglavernd aftur að liði sem stjórnarmaður.