| Hjálmar Andrés Jónsson |
| Skrifað af: Jakob Sigurðsson |
| Miðvikudagur, 03. Mars 2010 10:38 |
|
Ég heiti Hjálmar Andrés Jónsson og býð mig hér með fram til setu í stjórn Fuglaverndarfélags Íslands. Ástæðan fyrir því er einföld og er hún sú að ég hef alla tíð haft áhuga fyrir almennri náttúruskoðun og þá sérstaklega á fuglum og hátterni þeirra. Ég tel mig hafa þann tíma og áhuga sem þarf til að sitja í stjórn Fuglaverndar og vinna að þeim málum sem að Fuglavernd stendur fyrir. Ég álít hlutverk Fuglaverndar mikið og það verður alltaf þýðingarmeira eftir því sem að þrengir meir að búsvæðum fugla og viðkomustöðum þeirra er ógnað með margskonar framkvæmdum.
Ég er fæddur 1960 í Skógum undir Eyjafjöllum og uppalinn þar en síðar fluttist ég á Selfoss og átti þar heima í nokkur ár. Ég lærði byggingartæknifræði á sínum tíma og vann í þrjú ár sem byggingarfulltrúi og bæjartæknifræðingur á Eskifirði en síðustu tíu ár hef ég unnið hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík á Skipulags – og byggingarsviði. |






