Hrafn Svavarsson
Skrifað af: Jakob Sigurðsson   
Miðvikudagur, 03. Mars 2010 23:12

Hrafn SvavarssonKæru félagar.

Það er komið að öðrum kosningum til stjórnar í sögu Fuglaverndarfélags Íslands og mig langar að byrja á að þakka fyrir þetta tækifæri til að segja þeim sem ekki þekkja til mín aðeins frá sjálfum mér.

Ég heiti sem sagt Hrafn og er Fuglanörd og hef raunar verið það alveg síðan ég man eftir mér.

Ein af mínun fyrstu minningum er frá því að ég var ekki alveg orðinn 5 ára, en þá stofnaði ég Fuglabjörgunarsveit Íslands og skráði alla fjölskylduna í hana og fór fram á að fjölskyldumeðlimir gengu reglulega um hverfið og björguðu fuglum í neyð.

Ég veit ekki hvort það var til að losna undan því að vera á vakt en fljótlega upp úr þeim aldri kynnti faðir minn mig fyrir Fuglaverndarfélagi Íslands þar sem hópur fólks, meira að segja fullorðinna, höfðu sama áhugamál og ég. Það var því ekkert erfitt að samþykja að leggja niður Fuglabjörgunarsveitina að minnsta kosti í bili og ganga í Fuglaverndarfélagið. Ég man að stjórnarmennirnir sem fóru með okkur í fuglaskoðun á sunnudögum voru algjör átrúnaðargoð.

Uppfrá því hóf ég að sækja alla atburði á vegum félagsins sem ég komst á með pabba mínum og svo þegar ég varð aðeins eldri fékk ég að fara einn míns liðs.

Ég spurði mömmu um þetta tímabil þegar ég var 5-10 ár. Hún sagði að ég hefði verið erfiður „fuglafræðingur“ og oftar en einu sinni valdið örum hjartslætti og örvæntingu, dreginn upp úr leirunum í Kópavogi af lögreglunni búinn að vaða drullu upp að mitti til að kanna hvað lóurnar voru að éta eða týndur einhversstaðar á heiðinni sem nú heitir Linda og Salahverfi að skrásetja Sílamáfsvarpið.

Ég útskrifaðist úr Digranesskóla í Kópavogi, fór þaðan í Menntaskólann að Laugarvatni og svo beint í sem þá hét Viðskiptaháskólann á Bifröst. Á meðan ég stundaði námið á Bifröst nýtti ég mér tækifærið og stofnaði ferðaskrifstofuna Gavia Travel. Vorið 2006 útskrifaðist ég því af Bifröst með fyrirtæki í farteskinu.

Með stofnun Gavia Travel tókst mér að uppfylla ævilangan draum um að vinna að fuglavernd á Íslandi. En markmiðið með Gavia Travel er að búa til arðsamt fyrirtæki sem byggir afkomu sína á fuglaskoðun og sýnir þannig í verki fram á verðmæti þess að vernda fugla og búsvæði þeirra. Á bak við ferðaskrifstofuna koma í dag með einum eða öðrum hætti vel flestir fuglafræðingar og virkustu fuglaáhugamenn landsins.

Ég hef frá stofnun ferðaskrifstofunnar unnið af miklu kappi við að breiða út boðskapinn um mikilvægi og verðmæti þess að vernda fuglastofnana okkar og búsvæði þeirra. Í þeirri viðleitni að efla fuglatengda ferðaþjónustu á Íslandi stofnuðum við á síðasta ári, með dyggri aðstoð Útflutningsráðs, Samtök um Fuglatengda Ferðaþjónustu og gegni ég formennsku í þeim.

Markmiðið með samtökum er að gera Ísland að eftirsóttaverðum áfangastað til fuglaskoðunar fyrir erlenda fuglaskoðara. Þetta gerum við með því að skipta landinu í svæði þar sem klasar ferðaþjónustuaðila á hverju svæði fyrir sig vinna sameiginlega að því að gera sitt svæði betur í stakk búið til að taka á móti fuglaskoðurum og um leið hlúa að fuglunum og búsvæðum þeirra á sínu svæði. 

Kæri félagi í Fuglaverndarfélaginu, í dag stöndum við á tímamótum. Félagið hefur nýlega ráðið starfsmann í hálfa stöðu og hefur þannig verið hægt að lyfta allri starfseminni upp á hærra plan. En betur má ef duga skal og til að hægt verði að byggja félagið enn frekar upp þarf félagið sárlega að fara sem fyrst í gegnum stefnumótunarferli þar sem mörkuð verður stefna og áherslur félagsins til mismunandi mála og mikilvægra verkefna. Ég tel að í því starfi sem framundan er geti ég komið með verðmæta þekkingu og vinnu inn í stjórn félagsins og vona að þú teljir slíkt hið sama.

Hægt er að ná í mig í síma 863 3939 eða í gegnum tölvupóst á hrafn (att) gaviatravel.com