Fugl vikunnar: Fýllinn er sestur upp
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 05. Mars 2010 13:44
Þó kalt sé í veðri og talsvert í sumarið, eru ýmsir fuglar þegar farnir að huga að vorverkunum.  Einn þeirra er fýllinn.  Hann er nú víða sestur upp sem kallað er, farinn að heimsækja björgin og pörin sest á hreiðursyllur sínar.  Fýllinn er úthafsfugl sem verpur í byggðum í klettum og björgum við sjó eða inn til landsins, stundum ofan á klettaeyjum eða dröngum. Fýlar hverfa að mestu frá landinu á haustin og halda sig í norðanverðu Atlantshafi en heimsækja þó oft vörpin í mildu veðri og eru sestir upp snemma.  Fýll hefur breiðst mjög út á undanförnum áratugum og öldum og hefur fært sig inn til landsins, stundum tugi kílómetra frá sjó.  Hann verpur hvergi fjær sjó í heiminum en í Markarfljótgljúfri í Emstrum.  Sú saga að fýllinn þurfi að sjá sjó til að geta hafið sig til flugs stenst því ekki.  En hann sækir sér æti til sjávar hvar sem varpstöðvarnar kunna að vera.  Fýllinn er stór sjófugl sem minnir á máf, þéttvaxinn og hálsdigur með langa og mjóa vængi. Hvítleitur á höfði, hálsi og að neðan. Grár að ofan og á yfirvængjum, með dökka vængbrodda.  Fýllinn telst til pípunasa, nasirnar eru í pípum ofaná goggmæninum.  Fýll er auðgreindur frá máfum á einkennandi fluglagi, tekur fáein vængjatök og lætur sig svo svífa á stífum vængjunum.  Hann er léttur á sundi en á oft erfitt með að hefja sig á loft, sérstaklega í logni.  Leitar sér ætis bæði á flugi og syndandi, gjarnan kringum fiskiskip, í höfnum og við fiskvinnslustöðvar.  Sjómenn kalla hann múkka.