| Fuglavernd á vorhátíð Garðheima |
| Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir |
| Fimmtudagur, 15. Apríl 2010 16:43 |
|
Fuglavernd bauðst tækifæri til að kynna sig og starfsemi sín á vorhátíð Garðheima, laugardaginn 10. apríl. Var boðið vel þegið og stóðu vaktina þau Hulda Björg og Hjálmar fyrir hönd Fuglavernar. Þar var ýmislegt á boðstólum sem Fuglavernd hefur gefið út, svo sem Garðfuglabæklingurinn og dagatalið, kortin og fleira. Einnig var tilboð til nýrra félaga, þ.e. nýjir félagar fengu bókina hans Daníels Bergmanns að auki.
Það má alveg fullyrða að Fuglavernd hafi fengið góða kynningu á þessari vorhátíð og komu margir við borðið til að skoða það sem gefið hafði verið út af Fuglavernd og eins til að spjalla um fugla, spyrja og leita ráða varðandi garðfugla, hvort sem var um fuglafóður til gjafa á veturna og eins um hegðun hina ýmsu tegunda á sumrin. Það komu fram ábendingar um ýmislegt er varðar það að vera félagi í Fuglavernd, td. hvort það ætti að vera til skírteini sem sýndi að viðkomandi væri félagsmaður, til að sýna á viðburðum Fuglaverndar eins og á Fræðslukvöldum. En reynslan frá þessari vorhátíð er jákvæð og má alveg búast við framhaldi á þessari kynningu á næstu vorhátíð. Hjálmar A. Jónsson |








