| Uppákoma í friðlandinu á Flóa |
| Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir |
| Þriðjudagur, 20. Apríl 2010 11:54 |
![]() Sunnudaginn 25. apríl, á degi umhverfisins, verðum við með hátíðlega uppákomu ásamt sveitarfélaginu Árborg í fuglafriðlandinu í Flóa. Undirritaður verður nýr samningur um umsjón og uppbyggingu á fuglafriðlandinu og fuglaskoðunarhúsinu sem verður að þessu tilefni formlega tekið í notkun. Fuglavernd verður með leiðsögn og upplýsingar á staðnum en dagskráin byrjar klukkan 14:00. Tilvalið tækifæri til að kynna sér svæðið með leiðsögn. |









