Samningur um fuglafriðlandið í Flóa endurnýjaður
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 30. Apríl 2010 10:29
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri sveitarfélagsins Árborgar og Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar skrifaðu undir nýjan samning um umsjón og mótun Fuglafriðlands í Flóa á degi umhverfisins þann 25. apríl síðastliðinn. Samningur um samstarf í Fuglafriðlandi var fyrst undirritaður á Eyrarbakka 1997. Fuglafriðlandið er orðið þekkt hjá fuglaskoðurum víðsvegar um heiminn og á sumrin er stöðugur straumur fuglaáhugamanna sem gera sér ferð þangað að njóta fuglanna og umhverfisins. Hafist var handa við gerð fuglaskoðunarskýlis fyrir nokkrum árum og var lokið við það í fyrra. Jóhann Óli vígði formlega skýlið við athöfnina, sem er stórt og glæsilegt. Framtíðaráform fyrir Friðlandið er í mótun og er stefnt að því að bjóða uppá fuglaskoðun fyrir almenning, fuglaljósmyndara og fuglaáhugafólk.  Jafnframt verður haldið áfram að endurheimta votlendi á svæðinu en endurheimtuaðgerðir hófust árið 1997.  Þær hafa tekist mjög vel; fuglalíf hefur tekið kipp á endurheimtu svæðunum og sem dæmi má nefna, að lómavarp hefur margfaldast á þessum tíma.