|
Votlendisráðstefna - Jóhann Óli mun kynna fuglafriðlandið í Flóa |
|
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir
|
|
Þriðjudagur, 11. Maí 2010 10:57 |
|
Á morgun, miðvikukudaginn 12. maí verður haldin ráðstefna um votlendismál í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri frá klukkan 09:00-16:00. Titill ráðstefnunnar er Endurheimt votlendis - hvað þarf til? Ráðstefnan er haldin í tilefni alþjóðlegs árs líffræðilegrar fjölbreytni og í ljósi vaxandi umræðu um mikilvægi votlendis í loftslagsbreytingum en einnig njóta fuglar góðs af. Meðal fyrirlesara er Hans Joosten, prófessor við Greifswaldháskóla í Þýskalandi, sem er virtur sérfræðingur í endurheimt votlendis á alþjóðavettvangi. Votlendi eru algeng landgerð á Íslandi og talsvert hefur verið fjallað um mikilvægi þess að endurheimta röskuð votlendi til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið og til að efla líffræðilegan fjölbreytileika. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að fjalla um möguleika á endurheimt votlendis og hvernig best megi vinna að því verkefni. Jafnframt mun umhverfisráðherra tilkynna um ný votlendissvæði á lista Ramsarsamningsins. Markmið Ramsarsamningsins er að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega sem búsvæði fyrir votlendisfugla. Nú eru þrjú votlendissvæði hér á landi á lista samningsins. Það eru Þjórsárver, Mývatn- og Laxársvæðið og Grunnafjörður. Nánari upplýsingar er að finna hér á vef Umhverfisráðuneytis.
|