Áskorun til meindýraeyða og garðeigenda
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Þriðjudagur, 18. Maí 2010 15:37
Fuglavernd skorar á meindýraeyða að fara að lögum og eyða ekki starahreiðrum meðan egg og ungar eru í hreiðrinu.  Starinn er alfriðaður.  Þessi skemmtilegi fugl, sem hermir svo listilega eftir, er nýlegur landnemi hér á landi.  Hann sækist eftir nábýli við manninn og berst því óværa úr hreiðrinu, sérstaklega eftir að ungar eru farnir.  Það er óværa á öllum fuglum og getur hún borist af fjölda annarra tegunda á menn, sbr. dúnflóna.  Sumir setja út varpkassa í tré eða húsveggi fjarri gluggum, þar sem starinn getur orpið.

Best er koma í veg fyrir staravarp með því að loka glufum og rifum, sem fuglarnir sýna áhuga.  Ef starinn nær að verpa, er nauðsynlegt að bíða eftir að ungar fljúgi, síðan má hreinsa út hreiðrið, eitra og loka fyrir.  Fuglavernd hafa borist fregnir um að misbrestur sé á þessu.

Jafnframt skorar félagið á garðeigendur að eitra ekki garða sína, heldur nota náttúrlegar varnir gegn meindýrum.  Fuglar eru náttúrulegir óvinir skordýra í görðum og þeir bera skaða af að eta skordýr, sem hafa tekið í sig eitur.  Eitrið safnast fyrir í fuglunum og berst síðan upp fæðupýramídann, safnast loks fyrir í rándýrum á toppi hans.