| Hefur útbúið bók um ránfugla og er með aðra í smíðum um spörfugla |
| Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir |
| Miðvikudagur, 19. Maí 2010 12:43 |
|
Sigvaldi gengur í Grandaskóla, er í fjórða bekk og ásamt því að hafa áhuga á fuglum þá hefur hann áhuga á körfubolta og leiklist. Hann þekkir svo til alla fugla landsins og marga flækinga. Hann hefur þó ekki látið þar við sitja heldur hefur Sigvaldi sjálfur útbúið bók um ránfugla, fagurlega myndskreytta eigin teikningum. Þessa bók gaf hann afa sínum sem að sögn Sigvalda er einnig mikil fuglaáhugamaður. Núna er hann með í smíðum bók um spörfugla og það er aldrei að vita nema fuglabækurnar hans verði fleiri. |

Sigvaldi Eggertsson níu ára fuglaáhugamaður var svo heppinn að vinna sjónauka og bókina Fuglavísi eftir Jóhann Óla Hilmarsson þegar nafn hans var dregið út í Fuglasmiðju Fuglaverndar sem var einn viðburða á barnamenningarhátíð í lok apríl. 






