| Íslenski fjallahjólaklúbburinn með fuglaskoðunarferð |
| Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir |
| Þriðjudagur, 08. Júní 2010 10:36 |
|
Fjallahjólaklúbburinn fer þriðjudaginn 8. júní sína árlega fuglaskoðunarferð frá Fjölskyldu og Húsdýragarðinum kl 19:30. Jakob Sigurðsson, félagi í Fuglavernd, verður með í för og segir frá þeim fuglum sem verða á vegi hópsins. Farinn verður hringurinn í Grafarvoginum í rólegheitunum og stoppað oft. Munið eftir sjónaukanum. Ferð fyrir alla fjölskylduna.
|







