Heimsókn umhverfisráðherra Svandísar Svavarsdóttur í fuglafriðlandið
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 11. Júní 2010 11:24
Í tilefni að ári líffræðilegs fjölbreytileika bauð Fuglavernd umhverfisráðherra Svandísi Svavarsdóttur í fuglaskoðun í fuglafriðlandinu í Flóa nýlega og að skoða nýja fuglaskoðunarskýlið.  Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar og umsjónarmaður friðlandsins leiðbeindi okkur um svæðið en að staðaldri eru um 25 tegundir í fuglafriðlandinu. Fulltrúi Árborgar, Jón Hjartarson forseti bæjarstjórnar, sagði frá samstarfi Fuglaverndar og Árborgar við uppbyggingu friðlandsins og frá væntingum sveitafélagsins til svæðisins og mikilvægi þess sem votlendissvæðis. Hópurinn var þarna að kvöldlagi og sáust lómar á hreiðri, óðinshanar, lóuþrælar, æðabliki, toppendur og skúfendur, álft, ugla og kjóar á hreiðrum.
Alþjóðlegur dagur líffræðilegs fjölbreytileika var 22. maí síðastliðinn en allt árið er helgað þeim boðskap að styðja þurfi við fjölbreytni gena, tegunda og vistkerfa sem mynda líf á jörðinni.  Segja má að svæði eins og fuglafriðlandið í Flóa og uppbyggingin þar sé einmitt kjörið og lýsandi fyrir þá hugsun þar sem fuglar og menn geta notið sín í sátt og samlyndi.