Fugl vikunnar er rauðbrystingur: Gestur á leið milli varpstöðva og vetrarstöðva
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 06. Ágúst 2010 09:49

Rauðbrystingur er hnellinn meðalstór vaðfugl sem fer um í stórum hópum á leið milli varpstöðvum á Íshafseyjum Kanada og NV-Grænlandi og vetrarstöðva í V-Evrópu.  Íslenskar fjörur skipta sköpum fyrir rauðbrystingana sem og aðra þá fugla sem kallaðir eru umferðarfuglar eða fargestir.  Fyrir utan rauðbrysting eru þeir helstu blesgæs, margæs, helsingi, sanderla og tildra.  Auk þess fara hér um umferðarfuglar sem einnig verpa hérlendis eins og sandlóa, lóuþræll og steindepill.  Fuglar sem leggja upp í ferð frá Vestur-Evrópu til nyrstu hluta Kanada eiga fyrir höndum flug yfir Atlantshafið og Grænlandsjökul og áfram yfir íshaf og túndrur í Norður-Ameríku.  Vegalengdin sem þeir þurfa að leggja að baki er 4–5000 km.  Þessi farleið væri tæpast svo fjölfarin og jafnvel alls ekki til ef Íslands nyti ekki við.  Hér eru ákjósanleg skilyrði til hvíldar og mikið framboð fæðu til uppbyggingar orkuforða til áframhaldandi flugs.  Það má líkja Íslandi við bensínstöð fyrir fargesti. 

Sumarið er stutt á varpstöðvum þessara hánorrænu fugla.  Ef þeir koma þangað of snemma getur verið snjór yfir öllu og enga fæðu að fá.  Þeir sem lenda í því geta dáið úr hungri.  Ef þeir koma of seint hafa þeir ekki tíma til að koma ungunum á legg áður en fer að hausta.  

Rauðbrystingurinn fer að sjást hér á landi á vorin um miðjan apríl og sést fram í júníbyrjun.  Haustfarið byrjar um miðjan júlí og stendur fram í september.  Fyrst koma fullorðnu fuglarnir en ungarnir síðar. Þeir þurfa að rata þessa löngu leið uppá eigin spýtur, óstuddir af foreldrunum.  Fullorðnu fuglarnir eru rauðbrúnir en ungfuglarnir gráir.