Gefum fuglunum
Skrifað af: Fuglavernd   
Þriðjudagur, 08. Mars 2011 09:57

Gardfuglar_email_large_Orn_Oskarsson2011

Jarðbönn og snjór eru nú víða og hvetur Fuglavernd alla landsmenn til að fóðra fuglana þessa daga. Sem dæmi um fuglafóður má nefna brauð, epli, fitu, kjötsag, matarafganga handa þröstum, störum og hröfnum, sólblómafræ eða páfagaukafræ handa auðnutittlingum, kurlaður maís og hveitikorn handa snjótittlingunum. Silfurtoppan er hrifnust af eplum og rúsínum. Fita er þó það fóður sem hentar flestum fuglum vel í kuldum því þeir brenna miklu til að halda á sér hita. Gott er að gefa reglulega og hugsa fyrir því að hafa vatn aðgengilegt. Fuglarnir þurfa mest á næringu að halda kvölds og morgna. Ýmsir framandi gestir úr heimi fugla sem hafa lent hér í hrakningum leita oft á staði þar sem fuglum er gefið. Nánari upplýsingar má finna á garðfuglavefnum um fóðrun fugla í görðum. Ljósmynd: Örn Óskarsson.