| Varpkassar |
| Skrifað af: Jakob Sigurðsson |
| Sunnudagur, 27. Mars 2011 20:46 |
|
Varpkassar: fyrir stara til vinstri, þröst í miðju og maríuerlu til hægri.
Nú fást varpassar fyrir spörfuglana hjá Fuglavernd. Við höfum varpkassa fyrir 4 fuglategundir Kassarnir henta störum, þröstum, maríuerlum og músarindlum. Kassarnir eru tilvaldir til að lífga upp á garðinn eða sumarbústaðinn. Athugið að kassarnir eru sérsniðnir að tegundunum, þ.a. t.d. kassi fyrir þresti hentar þröstum en ekki öðrum tegundum. Kassarnir kosta 4.500 kr. og fást á skrifstofu félagsins. Vinsamlegast hringið eða sendið tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. til að kanna upplag áður en mætt er á staðinn. |









