Himbrimar og vöktun stofnsins: Fræðslufundur 28. apríl n.k
Skrifað af: Fuglavernd   
Þriðjudagur, 19. Apríl 2011 00:00

himbrimi_ws_thingvallavatn-js

Næsti fræðslufundur félagsins verður haldinn fimmtudagskvöldið 28. apríl en þá ætlar Ævar Petersen að vera með erindi um himbrima og vöktun stofnsins. Nokkur atriði úr lífsháttum himbrima eru rædd. Þar á meðal eru skoðaðar upplýsingar um stofnstærð og stofnbreytingar. Ennfremur hvaða vá steðji helst að íslenskum himbrimum. Sagt er frá hugmyndum um frekari gagnasöfnun um himbrima og verkefni til að koma á fót vöktun íslenska stofnsins.

Fundurinn byrjar kl. 20:30 og eru öllum opinn svo lengi sem húsrúm leyfir en hann er haldinn í húsakynnum Arion banka, Borgartúni 19. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en aðgangseyrir er 500 krónur fyrir aðra.
Myndina tók Jakob Sigurðsson.