|
Fuglaskoðun - 1.maí og 22. maí |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Fimmtudagur, 21. Apríl 2011 00:00 |
Miðvikudaginn 27. apríl kl: 20:00 verður fyrirlestur um fugla og fuglaskoðun í húsnæði ferðafélagsins Útivist á Laugavegi 178. Gunnar Þór Hallgrímsson fræðir okkur um fuglana í borgarumhverfinu en þessum fyrirlestri verður svo fylgt eftir með fuglaskoðun í fylgd með sérfróðum í tveimur sunnudagsgöngum. Hin fyrri verður 1. maí. Þá verður farið í Friðlandið í Flóa og í Stokkseyrarfjöru og hugað að mófuglum og vaðfuglum. Tilhugalífið er þá í hámarki og fuglarnir lítt varir um sig. Jóhann Óli Hilmarsson mun leiða okkur í þeirri ferð.?Seinni ferðin verður 22. maí út á Hafnaberg á Reykjanesi og skoðaðir bjargfuglar sem verða sestir upp á þeim tíma. Arnór Þ. Sigfússon mun leiða skoðunina þar. Þessir atburðir Útivistar eru í samvinnu við Fuglavernd og ferðirnar eru upplagðar fyrir fólk á öllum aldri, frá 5 til 95 ára. Fræðslukvöldið er þátttakendum að kostnaðarlausu en hóflegt gjald tekið fyrir ferðirnar og félagar Fuglaverndar fá aflsáttarkjör. Þetta er gott tækifæri til þess að læra að njóta betur náttúrunnar í gönguferðum.
Einnig má sjá frétt á heimasíðu Útivistar. Myndina á Daníel Bergmann.
|