Lundaskoðun frá Reykjavík - áframhaldandi samvinna
Skrifað af: Fuglavernd   
Mánudagur, 06. Júní 2011 00:00

Puffin-JOH-Serferd_LItilVið vorum með 2 sérstakar ferðir fyrir félaga Fuglaverndar út að Akurey, sunnudagsmorgnana 29. maí og 5.júní, til að skoða lunda. Þetta mæltist svo vel fyrir að fullt var í báðar ferðirnar og komust færri en vildu. Ákveðið hefur verið að framlengja samvinnunni við Sérferðir og bjóða þeir áfram afslátt fyrir félaga Fuglaverndar í hvaða ferð sem er og kostar ferðin því 1000 kr. í stað 3500 kr. Það þarf bara að kynna sér áætlun á http://www.specialtours.is/ og mæta tímanlega.  Besti tíminn til lundaskoðunar er snemma morguns og fæstir eru þá í bátnum. Þykir við hæfi að minna á grein sem birtist í síðasta tölublaði tímaritsins Fuglar og heitir "Lundaskoðun frá Reykjavík"