Vorið hjá Fuglavernd
Skrifað af: Fuglavernd   
Laugardagur, 30. Apríl 2011 23:58

Vetrardagskrá Fuglaverndar lauk fyrir stuttu með fyrirlestri Ævars Petersens um Himbrima vöktun.

Nokkra af fyrirlestrum vetrarins má sjá á Youtube síðu Fuglaverndar.

Ýmislegt spennandi fyrir fuglaáhugafólk er á döfinni, til að mynda fuglaskoðun og vormarkaður á Elliðavatni 14-15 maí, fuglaskoðun á Álftanesi 15. maí, Lundaskoðun frá Reykjavíkurhöfn 29.maí og 5.júní og fleira.

Þessa atburði og aðra má sjá á dagatali Fuglaverndar með því að smella á dagatalið sem er hér ofarlega í hægri dálknum. Einnig viljum við minna við á Facebook síðu Fuglaverndar.

Myndirnar þrjár efst til hægri hér á síðunni er tenglar á Facebook, dagatalið og YouTube síður Fuglaverndar:

 

Fuglavernd á Facebook Dagskrá FuglaverndarYoutube síða Fuglaverndar