| Fuglaskoðun á Álftanesi - 15.maí 2011 |
| Skrifað af: Fuglavernd |
| Miðvikudagur, 11. Maí 2011 14:27 |
|
Í tilefni af Alþjóðlega farfugladeginum verður Fuglavernd með fuglaskoðun á Álftanesi sunnudaginn 15.maí. Lagt verður af stað gangandi frá Kasthúsatjörn klukkan 13:00 og er áætlað að fuglaskoðunin taki um einn og hálfan tíma. Ólafur Torfason mun leiða gönguna. Allir velkomnir en munið eftir að taka sjónaukann með ykkur. Þema alþjóðlega farfugladagsins er að þessu sinni breytingar á landnotkun séð með augum fuglsins fljúgandi.
|









