|
Fuglaskoðun og vormarkaður við Elliðavatn - 14. og 15. maí |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 11. Maí 2011 14:36 |
|
Fuglavernd mun taka þátt í vormarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur um næstu helgi, 14. og 15.maí. Markaðurinn er opinn frá 10-18 báða dagana og verður fjölbreytt dagskrá. Á heimasíðu Skógræktarinnar má fá frekari upplýsingar og kort af svæðinu. Við verðum m.a. með garðfuglabæklinginn okkar til sölu og tækifæriskortin og einhver fuglahús eigum við eftir. Boðið verður upp á fuglskoðun báða dagana en lagt verður af stað frá Elliðavatnsbæ stundvíslega klukkan 15:00 og munu sjálfboðaliðar frá Fuglavernd leiða gönguna. Allir velkomnir en munið eftir að taka sjónaukann með ykkur. Meðfylgjandi mynd af skúfönd tók Jakob Sigurðsson en hann mun meðal annarra leiða fuglaskoðunina.
|