Áskorun til garðeiganda og meindýraeyða
Skrifað af: Fuglavernd   
Þriðjudagur, 17. Maí 2011 11:18

Stari26_WSJohann_Oli_HilmarssonFuglavernd skorar á meindýraeyða og garðeigendur að fara að lögum og eyða ekki starahreiðrum meðan egg og ungar eru í hreiðrinu.  Starinn er alfriðaður og því ólöglegt að drepa staraunga í hreiðri eða eyða eggjum. Þessi fallegi og skemmtilegi fugl, sem hermir svo listilega eftir, er nýlegur landnemi hér á landi. Hann sækist eftir nábýli við manninn og getur því borist óværa úr hreiðrinu í híbýli manna inn um glugga t.d. Best er koma í veg fyrir staravarp með því að loka glufum og rifum sem fuglarnir sýna áhuga snemma vors.  Sumir setja út varpkassa í tré eða húsveggi fjarri gluggum og þakkar starinn fyrir sig með fjölbreyttum söng og líflegu látbragði. Ef starinn nær að verpa nálægt gluggum t.d., er nauðsynlegt að bíða eftir að ungarnir yfirgefi hreiðrið svo hægt sé að hreinsa út hreiðrið, eitra og loka fyrir.