Fuglaskoðun í Friðlandi í flóa miðvikudaginn 15. júní
Skrifað af: Hólmfríður Arnardóttir   
Föstudagur, 10. Júní 2011 15:41

Alft_JOH_FridlandidMiðvikudagskvöldið 15. júní n.k. mun Fuglavernd bjóða upp á fuglaskoðun í fuglafriðlandinu í Flóa. Jóhann Óli Hilmarsson mun leiða okkur um svæðið en fuglaskoðunin hefst klukkan hálf átta (19:30) við fuglaskoðunarskýlið sem er við bílastæðið í friðlandinu. Votlendisfuglar einkenna friðlandið og eru bein tengsl við nálæg fuglarík svæði eins og fjöruna, Ölfusárós og Ölfusforir. Á heimasíðunni okkar má finna frekari upplýsingar um fuglafriðlandið. Fuglalífið er sérstaklega auðugt og tegundaríkt á varptíma. Mikilvægt að vera vel skóaður og muna eftir sjónaukanum og ef til vill handbók um fugla.

Allir velkomnir en hér má sjá kort af friðlandinu.