Silkitoppur verpa í Mývatnssveit
Skrifað af: Fuglavernd   
Þriðjudagur, 02. Ágúst 2011 14:44
Silkitoppur_unga_YannKolbeins-2-wsÍ lok júlí fréttist af silkitoppu-pari í Mývatnssveit með nýfleyga unga. Félagi Fuglaverndar fór á staðinn og fann fljótlega fjóra litla hnoðra sem gerðu fátt annað en að sitja þétt saman og bíða eftir matargjöfum foreldranna. Fullorðnu fuglarnir mötuðu ungana á nokkurra mínútna fresti og gáfu þeim aðallega misþroskuð krækibær. Þó komu þeir einstöku sinnum með hryggleysingja (flugur að mestu). Toppurnar bera ekki æti í ungana eins og þrösturinn heldur fylla þær hálsinn og „æla“ ofan í ungana. Þetta er fyrsta varptilfelli þessarar tegundar á Íslandi, og væntanlega í NV-verðri Evrópu. Tilkynningar hafa borist víða að í sumar, frá Vestfjörðum og austur, með norðurströndinni, á Fellabæ. Aðeins við Mývatn og á Fellabæ hafa fuglar sést öðru hverju í sumar en annars staðar er líklega um að ræða einstök tilfelli eftir því sem best er vitað. Það er mjög óvenjulegt að silkitoppur sjáist hér yfir höfuð yfir sumartímann en margir urðu þeirrar ánægju aðnjótandi að hafa þær í fæði hjá sér í vetur. Yann Kolbeinsson tók þessa mynd.