Kríuungi við Grænavatn á Veiðivatnasvæðinu
Skrifað af: Fuglavernd   
Fimmtudagur, 11. Ágúst 2011 23:54
kria1Ekki var allstaðar sama eymdin og volæðið hjá kríunni þetta sumarið. Óvenju mikið af kríu sást í Veiðivötnum. Þær skiptu hundruðum í júní. Nokkur pör verptu og komu upp ungum þrátt fyrir harðindi framan af sumri. Ungarnir eru nú orðnir fleygir en eru enn á Veiðivatnasvæðinu þó svo allir fullorðnu fuglarnir séu farnir. Meðfylgjandi eru myndir af kríuunga við Grænavatn í Veiðivötnum í síðustu viku. Hann var að læra veiðikúnstina og einbeitti sér að hornsílum í flæðamálinu. Hann beið á bakkanum og fylgdist vel með hverri öldu. Ef hann sá eitthvað stakk hann sér í ölduna og náði með því móti mörgum hornsílum. Fleiri myndir af kríuunganum eru á vefsíðunni: http://www.flickr.com/photos/raudkollur/ en þessar myndir tók Örn Óskarsson.