Ályktun Fuglaverndar, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands vegna vegagerðar í Gufudalssveit
Skrifað af: Fuglavernd   
Fimmtudagur, 22. September 2011 11:30
Fuglavernd, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls. Þessi leið hefur verið samþykkt af Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra og því er ekkert því til fyrirstöðu að ráðast í hana og bæta þannig strax úr brýnni þörf Vestfirðinga á betri samgöngum með láglendisvegi.  Með þessari úrslausn yrði komið í veg fyrir þau miklu náttúrspjöll sem myndu hljótast af leið B um óspillta náttúru, m.a. eftir Teigsskógi endilöngum og yfir eyjar og sker í mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar í nágrenni tveggja arnarsetra.

Ofangreind samtök telja óréttlætanlegt að fórna þessum náttúruverðmætum sem eru á náttúrminjaskrá og falla undir lög um verndun Breiðafjarðar þar eð aðrar leiðir eru fyrir hendi. Göng undir Hjallaháls eru að öllum líkindum ódýrari en leið B þegar búið er að taka tillit til aukakostnaðar, jaðarkostnaðar og umhverfiskostnaðar.  Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndar, svarar fyrirspurnum fjölmiðla um ályktunina í síma 8920299 eða 5673540.