Umhverfisþing 2011 - 14. okt. á Hótel Selfossi.
Skrifað af: Fuglavernd   
Mánudagur, 03. Október 2011 11:14

Á þinginu verður fjallað um náttúruverndarmál, þar á meðal nýútkomna hvítbók um endurskoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar, ferðaþjónustu, útivist, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd.
Heiðursgestur er Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna sem fagna 100 ára afmæli í ár. Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar er að finna á vef umhversráðuneytisins - www.umhverfisraduneyti.is. Nauðsynlegt er að skrá sig á þingið en það má gera beint á vefnum eða í síma 545 8600. Skráningu lýkur 5. okt.