Leikskólabörnin á Bakkabergi gerast félagar í Fuglavernd
Skrifað af: Fuglavernd   
Miðvikudagur, 05. Október 2011 11:10
BakkabergÞann 16. september síðastliðinn, á degi náttúrunnar, þá gerðust leikskólabörnin á Bakkabergi félagar í Fuglavernd. Þau hafa verið við útinám þar sem meðal annars var mikið fjallað um fuglana og í framhaldi af því bönkuðu þau upp á hjá Fuglavernd og vildu gjarnan gerast félagar. Það var mikil viðhöfn höfð við inngönguna, þar sem leikskólabörnin höfðu búið sér til krummagrímur og æft sönga um krumma sem voru sungnir fyrir Hólmfríði Arnardóttir framkvæmdastjóra þegar hún færði þeim skjal þess merkis að börnin væru orðnir félagar. Bakkabergsbörnin eru því fyrstu leikskólabörnin sem eru fullgildir meðlimir í Fuglavernd.