Garðfuglakönnun veturinn 2011-2012 hefst 30.október
Skrifað af: Fuglavernd   
Miðvikudagur, 26. Október 2011 09:48

Nú er komið að árvissri garðfuglakönnun Fuglaverndar en stendur hún yfir allan veturinn og hefst 30. október n.k. Fuglavernd byrjaði með Garðfuglakönnun veturinn 1994-95.  Markmiðið er sem fyrr að athuga hvaða fuglar sækja í garða, í hve miklu magni og breytingar í tegundasamsetningu yfir vetrarmánuðina og skoða breytileika milli ára og landsvæða. Árangurinn byggir á þátttöku svo við hvetjum sem flesta að leggja þessu verkefni lið. Hér má finna eyðublaðið með word sniði eða PDF sniði.

gardfuglakonnun_orn_oskarsson_small_emailFramkvæmd Garðfuglakönnunar er einföld en hana má kynna sér í pistli í tímariti Fuglaverndar, Fuglum nr. 3 (sem verður fljótlega aðgengilegt hér á vefnum), og á Garðfuglavefnum.  Búið er að taka saman yfirlit síðustu þriggja vetra og verður það birt í Fuglum, tímariti Fuglaverndar sem kemur út í desember.  Ef einhver lúrir á niðurstöðum frá því í fyrra þá sendið þær inn sem fyrst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Þeir sem hafa tekið þátt eiga þakkir skyldar og vonandi sjá þeir sér fært að vera með í vetur.
Að gefa fuglunum er skemmtilegt og gagnleg tómstund.  Upplýsingar um fóðrun garðfugla og hvernig standa megi að garðrækt til hagsbóta fyrir fugla má fá í garðfuglabæklingi Fuglaverndar og á vefnum um garðfugla.


Myndina tók Örn Óskarsson í garðinum sínum.
Til fróðleiks má sjá slóð"Project FeederWatch", sem er keimlík könnun og okkar og niðurstöðurnar eru líka aðgengilegar.

Í Bretlandi er einnig fylgst með garðfuglum en sú rannsókn er í gangi allt árið sjá: http://www.bto.org/gbw/index.htm