|
Ljósmyndasýningin Fuglablik á Akureyri |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 07. Desember 2011 11:34 |
|
Ljósmyndasýningin Fuglablik er til sýnis í safnaðarheimili Akureyrarkirkju 5. desember en þar má skoða hana alla virka daga frá 9 – 15 (athugið opnunartíma) og um helgar þegar starfsemi er í húsinu.
Sýningin er tileinkuð velunnara félagsins, Hjálmari R. Bárðarsyni, sem lést í mars 2009. Hjálmar var brautryðjandi í fuglaljósmyndun og gaf út fyrstu stóru ljósmyndabókina um íslenska fugla árið 1986. Hjálmar, ásamt Grétari Eiríkssyni, var af annarri kynslóð íslenskra fuglaljósmyndara en það var Björn Björnsson frá Norðfirði sem ruddi brautina. Hjálmar var gríðarlega áhugasamur, iðinn, nákvæmur og listrænn í ljósmyndun sinni. Myndir hans á sýningunni eru allar teknar á 6x6 cm filmu.
Þegar stafræna byltingin varð á fyrstu árum aldarinnar fjölgaði mjög í hópi fuglaljósmyndara, eins og sést á því að þátttakendur í sýningunni eru 18, auk Hjálmars, þar á meðal margir af helstu myndasmiðum þjóðarinnar á sínu sviði. Aldurinn spannar frá 14 ára til 87 ára. Viðfangsefni þeirra eru ærið misjöfn en sammerkt með verkunum er aðdáun og virðing á íslenskri náttúru og íslenskum fuglum. Í verkunum leika ljósmyndararnir sér að litum, ljósi og skugga, sýna fugla að leik og starfi, í aksjón eða kyrra, portrett eða sem hluta af náttúrunni. Efnistökin eru jafn margbreytileg og ljósmyndararnir eru margir og býður sýningin uppá afar skemmtilega upplifun. Umhverfisráðuneytið styrkti sýninguna og Ljósmyndasafn Íslands (Þjóðminjasafnið) veitti góðfúslega aðgang að ljósmyndasafni Hjálmars.
|