|
Fuglaskoðun við Hvaleyrarlón 11.desember |
|
Skrifað af: Fuglavernd
|
|
Miðvikudagur, 07. Desember 2011 11:37 |
|
Sunnudaginn 11.desember býður Fuglavernd upp á fuglaskoðun við Hvaleyrarlón í Hafnarfirði. Ólafur Torfason mun leiða hópinn og fræða okkur um hvaða fuglar dvelja þar í svartasta skammdeginu. Lagt verður af stað stundvíslega klukkan 14:00 frá bátaskýlunum. Undanfarið hefur sést til gráhegra í lóninu og er von okkar að þeir verði enn á sveimi á sunnudaginn.
|