Samskipti sjófugla, sandsíla, afræningja í sjó og fiskveiða
Skrifað af: Fuglavernd   
Föstudagur, 16. Desember 2011 09:10
Robert Furness prófessor við Háskólann í Glasgow heldur erindi föstudaginn 16. desember kl. 14 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.

Fjöldi sjófugla í Skotlandi jókst töluvert frá sjötta áratug síðustu aldar fram á þann tíunda. Vísbendingar eru um að ein ástæða þessarar aukningar hafi verið fjölgun sandsíla. Ofveiði  á þorski, lýsu, makríl og síld í Norðursjó leiddu til fjölgunar sandsíla.  Veiðar á sandsílum jukust í kjölfarið. Í lok níunda áratugarins hrundi sandsílastofninn við Hjaltlandseyjar og hafði það áhrif á varpárangur og stofnstærð nokkurra sjófuglategunda. Eftir aldamót hafa flestir sandsílastofnar minnkað stórlega í Norðursjó og sýnt litla nýliðun. Samfara hruni sandsílastofnanna jókst síld í Norðursjó. Stofnstærð margra skoskra sjófugla er nú minnkandi að undanskilinni súlu sem lifir á síld auk minni fiska. Fyrirlesturinn mun rekja þessar breytingar og fjalla um að hve miklu leyti breytingarnar megi rekja til fiskveiða frekar en náttúrlegra orsaka einsog loftslagsbreytinga.