|
Miðvikudagur, 20. Maí 2009 00:00 |
|
Ljósmyndasýning í Skaftafellsstofu og fyrirlestur um fuglana í garðinum. Laugardaginn 23. maí verður opnuð ljósmyndasýning í Skaftafellsstofu á vegum Fuglaverndar með fjölbreyttum og einstaklega fallegum ljósmyndum af íslenskum fuglum eftir fjölda fuglaljósmyndara. Einar Ó Þorleifsson mun fylgja sýningunni úr hlaði með fyrirlestri um fuglana í garðinum kl. 14. sama dag. Sýningin stendur til 30. júní. Opnunartími Skaftafellsstofu í maí er frá 10 - 16, frá 1. til 15. júní frá 9 - 19 og frá 16. júní til 20. ágúst verður opið frá 8 - 21. Allir velkomnir.  Ljósmyndarar sem taka þátt í sýningunni eru: Björn Arnarson Einar Guðmann Gyða Henningsdóttir Hrafn Óskarsson Jakob Sigurðsson Óskar Andri Rán Magnúsdóttir Skúli Gunnarsson Sigurður Ægisson Sindri Skúlason Þórir Níels Kjartansson
|