|
Alþjóðlegi farfugladagurinn |
|
Mánudagur, 04. Maí 2009 00:00 |
|
Haldið verður upp á alþjóðlega farfugladaginn á Álftanesi næstkomandi laugardag, 9. maí. Boðið verður upp á gönguferð og fuglaskoðun, leiðbeiningar um fuglaljósmyndun og ýmsar upplýsingar um fugla, ferðir þeirra og farleiðir og um náttúru Álftaness. Umhverfisráðuneytið, Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Sveitarfélagið Álftanes, Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness og Fuglavernd halda sameiginlega upp á daginn. Dagskrá - 13.00 – 16.00. Upplýsingastöð í Álftanesskóla. Aðgengilegar verða upplýsingar um fugla, flug og farleiðir þeirra, fuglalíf og náttúru á Álftanesi, friðlýsingu Skerjafjarðar og Álftaness og dagskrá farfugladagsins.
- 13.00 – 14.00. Kynning á fuglaljósmyndun í Álftanesskóla. Félagar í Fuglavernd fara yfir helstu atriði við ljósmyndun fugla og veita grunn leiðbeiningar. Farið verður í stutta göngu að Kasthúsatjörn þar sem hugað verður að fuglaljósmyndun og nokkrar myndir teknar.
- 13.00 – 14.00. Fuglaskoðun og leiðbeining um greiningu fugla við Bessastaðatjörn (við bílastæði hjá Bessastaðakirkju). Félagar í Fuglavernd leiðbeina og aðstoða þátttakendur við greiningu og fuglaskoðun. Gott er að mæta með sjónauka.
- 14.20 - 16.00 Gönguferð og fuglaskoðun umhverfis Bessastaðatjörn í fylgd félaga úr Fugla- og náttúruverndarfélagi Álftaness og félaga úr Fuglavernd til að fræðast um Álftanes og til fuglaskoðunar. Lagt af stað frá Álftanesskóla.
|