| Fyrirlestur og myndasýning |
| Sunnudagur, 05. Apríl 2009 00:00 |
|
Fuglalíf á Djúpavogi og fuglaverkefnið birds.is Þriðjudaginn 7. apríl kl 20: 30 í sal Kaupþings í Borgartúni 19. Kristján Ingimarsson frá Djúpavogi flytur fyrirlestur um fuglaverkefnið á Djúpavogi sem er afar áhugavert og hefur laðað að fjölda innlendra sem erlendra fuglaskoðara til að skoða hið fjölbreytta og merkilega fuglalíf sem þar er að finna. Meðal varpfugla á staðnum eru margar andategundir t.d. hinar sjaldgæfu brandendur, skeiðendur, gargendur og grafendur. Þarna eru einnig flórgoðar varpfuglar og gríðarmikið óðinshanavarp. Á Djúpavogi verpa einnig villtar bjargdúfur og mun Kristján sýna myndir af litskrúðugu og fjölbreyttu fuglalífi staðarins. Þá ætlar Kristján að greina frá verkefninu birds.is sem fékk nýverið “Frumkvöðulinn” verðlaun Markaðsstofu Austurlands fyrir að hafa aukið fjölbreytni í ferðaþjónustu á Austurlandi. Hann mun segja frá hvernig það kom til að farið var að leggja áherslu á fuglaskoðun á Djúpavogi og nágrenni, hvað hefur verið gert á vegum birds.is og hvað er framundan í verkefninu. Kristján mun einnig kynna þau svæði sem henta best til fuglaskoðunar þar um slóðir en Álftafjörður og Hamarsfjörður í næsta nágrenni eru alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði vegna þúsunda jaðrakana og hundruða álfta sem hafa þar viðkomu . Fyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 7. apríl og hefst kl. 20:30 á nýjum stað fræðslufunda Fuglaverndar, í húsi Kaupþings við Borgartún 19 (jarðhæð) gengið inn um aðalinngang. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr. |








