|
Mánudagur, 02. Febrúar 2009 00:00 |
|
Fagurt galaði fuglinn sá Ljósmyndasýning á Vetrarhátíð / safnanótt föstudagskvöldið 13. febrúar frá kl. 20 til 22 og laugardaginn 14. febrúar á milli 13 og 17. Sýningin verður í safnaðarheimili Dómkirkjunnar við hliðina á Iðnó. Fuglavernd, í samstarfi við fjölda fuglaljósmyndara, sýnir fjölbreyttar og einstaklega fallegar ljósmyndir af íslenskum fuglum. Sýningin verður gædd lífi með fuglahljóðum úr hinum skemmtilega dagskrárlið RÚV; Fugli dagsins. Boðið verður upp á leiðsögn um fuglalíf við Tjörnina á laugardeginum kl. 14. Einar Ó. Þorleifsson og Jakob Sigurðsson leiðsegja. Sýningin verður í framhaldinu sett upp í Norræna húsinu, mánudaginn 16. febrúar og verður þar til 13. mars. Ljósmyndarar sem taka þátt í sýningunni eru: Einar Guðmann Gyða Henningsdóttir Hrafn Óskarsson Jakob Sigurðsson Ómar Runólfsson Óskar Andri Rán Magnúsdóttir Skúli Gunnarsson Sigurður Ægisson Sindri Skúlason Þórir Níels Kjartansson
|