| Garðfuglaskoðun 23. til 26. janúar 2009 |
| Sunnudagur, 11. Janúar 2009 00:00 |
|
Dagana 23.–26. janúar 2009 stendur Fuglavernd fyrir garðfuglaskoðun sem er nú einn af þeim árvissu viðburðum sem félagið stendur fyrir. Landsmenn eru hvattir til þess að taka þátt í garðfuglaskoðun 2009, sérstaklega þeir sem gefa fuglum í görðum sínum. Þeir Íslendingar sem gefa fuglum að vetri til teljast örugglega í þúsundum. Markmið garðfuglaskoðunar er að fá sem flesta til þess að skoða fugla í görðum sínum og vekja áhuga á fuglaskoðun og hversu auðvelt það er að stunda hana. Fá fólk til þess að fóðra fugla, vekja áhuga á fuglum og töfrum þeirra. Ennfremur er markmiðið að afla upplýsinga um fugla í görðum landsmanna, hvaða tegundir eru til staðar og í hve miklu magni og á tímum loftslagsbreytinga. Nú þegar harðnar á dalnum hjá smáfuglunum hvetur Fuglavernd landsmenn til þess að gefa fuglum. Það er uppbyggjandi tómstundargaman og þannig má einnig aðstoða þá garðfugla í lífsbaráttunni. Fuglavernd hefur gefið út veglegan fræðslubækling um garðfugla. Þar er fróðleikur og myndir af fuglum sem sækja í garða, hvernig á að fóðra þá og hvaða tré henti best til þess að laða að fugla í garða. Félagar í Fuglavernd hafa fengið þennan bækling og nýir félagar fá hann sendan heim. Upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra má finna á Garðfuglavefnum. Þar er einnig hægt að senda inn niðurstöður garðfuglaskoðunar. Hér er hægt að sækja eyðublað og frekari upplýsingar um Garðfuglaskoðun 2009 |









