| Sjófuglaparadísin Vestmannaeyjar |
| Sunnudagur, 11. Janúar 2009 00:00 |
|
Tekin verður saman þekking um sjófugla í Vestmannaeyjum. Í Eyjum eru um 1,7 milljónir para sjófugla og telja höfuðstöðvar lundans þar þyngst. Mesti tegundafjölbreytileiki sjófugla á Íslandi er í Vestmannaeyjum, þar eru flestar algengar tegundir, en einnig eru þar höfuðstöðvar sjaldgæfari tegunda eins og sæsvalna og finnst skrofa hvergi annarsstaðar. Þar eru og fjögur súluvörp svo dæmi séu tekin. Í þessu erindi verður veitt yfirlit yfir stofnstærð og útbreiðslu tegunda sem byggja Vestmannaeyjar auk þess sem fjallað verður um lífshætti þeirra í bland við svipmyndir af fuglum og náttúru. Lítillega verður fjallað um rannsóknir á nýliðunarbresti í lundastofninum. Fyrirlesarinn, Erpur Snær Hansen, er sviðstjóri vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands í Vestmannaeyjum. Fyrirlesturinn verður á nýjum stað fræðslufunda Fuglaverndar, í húsi Kaupþings við Borgartún 19 (jarðhæð) gengið inn um aðalinnganginn, fimmtudaginn 15. janúar og hefst kl. 20:30. Aðgangur er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr. |








