Friðland í Flóa fyrir fólk og fugla
Miðvikudagur, 20. Maí 2009 00:00

Vor í Árborg

Laugardaginn 23. maí verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandi Fuglaverndar og Árborgar við ósa Ölfusár, norðan við Eyrarbakka. Leiðsögn verður á staðnum á milli 09:00 -12.00.

Fuglavernd verður með fræðslu og mælt er með því að þeir sem tök hafa á mæti með kíki og fuglahandbækur. Einnig er upplagt að taka með sér nesti og fá sér sopa í náttúrunni við fuglasöng og nið frá Ölfusá.

Fuglalífið fer nú að ná hámarki í Friðlandinu og verður eflaust margt að sjá. Þeir fuglar sem vænta má að sjáist á ferli eru: lómur, lóuþræll, jaðrakan, endur og álftir svo nokkuð sé nefnt

Fuglaskoðunarhúsið er nú tilbúið og verður það opið alla helgina fyrir gesti og gangandi.

Lómur