|
Miðvikudagur, 03. Júní 2009 00:00 |
|
Fuglaskoðun Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Fuglaverndar í Höfðaskógi og við Hvaleyrarvatn kl. 10:00 Laugardaginn 6.júní.
Leiðin að gróðrarstöð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, Þöll liggur úr Hafnarfirði frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg. Fuglaskoðunin hefst í gróðrarstöðinni, gengið verður í hring um skógræktarsvæðið að Hvaleyrarvatni. Meðal fugla í skóginum sem búast má við að sjá eru glókollur, músarrindill, krossnefur, auðnutittlingur, svartþröstur, skógarþröstur, stari, maríuerla og þúfutittlingur. Í þessum sérstaklega fallega skógi er mikið safn runna og trjátegunda og hefur verið plantað fjölda tegunda sem laða að fugla með berjum, fræjum og skordýrum. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hefur verið þáttakandi í verkefninu Fuglaskógurinn með Fuglaverndarfélagi Íslands sem lítur að því að setja upp fuglahús í skóginum og gera útvistarskóga sem fuglavænsta. Gróðrarstöðin Þöll hefur að bjóða mjög fjölbreytt úrval runna og trjáa og verður sérstök kynning á þeim tegundum sem henta best í fuglagarðinn. Leiðsögumenn verða Steinar Björgvinsson garðyrkjufræðingur og Einar Ó. Þorleifsson náttúrufræðingur. Kynning verður á starfsemi Fuglaverndar. Hreiðurkassar sér hannaðir fyrir íslenska fugla verða til sölu ásamt ráðgjöf varðandi fuglafóðrun o.fl. í Selinu, bækistöðvum Skógræktarfélagsins þaðan sem lagt verður af stað. Gangan tekur um 2 klst. Upplýsingar veita: Steinar Björgvinsson og Hólmfríður Finnbogadóttir S: 5556455 Einar Ó. Þorleifsson S: 8972161
|