|
Fuglagarðurinn í Hafnafirði, 7. til 8. júní |
|
Miðvikudagur, 04. Júní 2008 00:00 |
|
Næstkomandi helgi munu Fuglavernd og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar standa fyrir kynningu á öllu því er við kemur fuglagarðinum í Selinu, bækistöðvum Skógræktarfélagsins við Kaldárselsveg í Hafnarfirði. Boðið verður upp á fuglaskoðunarferðir með leiðsögn um Höfðaskóg kl. 10:15 bæði laugardag og sunnudag. Leiðsögumenn verða Einar Ó. Þorleifsson og Steinar Björgvinsson. Fuglavernd mun kynna og bjóða til sölu fuglahús sem sérhönnuð eru fyrir ýmsar fuglategundir er finnast á Íslandi, t.d. skógarþröst, svartþröst, maríuerlu, stara og músarrindil. Einnig verður til sölu árekstravörn á rúður sem fuglum hættir til að fljúga á - límmiði með fálkamynd. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðin Þöll, sem félagið rekur, mun kynna heppilegar tegundir trjáa og runna sem hafa gildi fyrir garðfugla, t.d. hlíðaramal, ylli og ýmsar rifs- og reynitegundir. Nánari upplýsingar eru veittar í símum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar (555-6455) og Fuglaverndar (562-0477). 
|