Ályktun frá aðalfundi Fuglaverndar 8. apríl 2008
Miðvikudagur, 09. Apríl 2008 00:00
Aðalfundur Fuglaverndar mótmælir harðlega fyrirhugaðri vegalagningu í Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum, þar sem stendur til að leggja veg langsum eftir Teigsskógi, einum stærsta skógi á Vestfjörðum, yfir mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar og nærri tveimur arnarhreiðrum. Þessi vegur mun valda miklum náttúruspjöllum á áður ósnortnum svæðum. Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld til þess að endurskoða þessa vegagerð og velja aðra og náttúruvænni leið í gegnum svæðið, svo sem með jarðgöngum.