|
Mánudagur, 07. Apríl 2008 00:00 |
|
Fuglavernd stendur fyrir ráðstefnu um fugla laugardaginn 19. apríl, kl. 13–16:30 í Öskju, Háskóla Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Líffræðistofnun Háskólans og Náttúrufræðistofnun. Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra setur ráðstefnuna. Fundarstjórar verða Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðvetsurlands og Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur. Á milli fyrirlestra verða stuttar umræður. Dagskrá fyrirlestra: Jan Ejlstedt, framkvæmdastjóri DOF (danska fuglaverndarfélagsins). Alþjóðleg fugla- og búsvæðavernd. Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Guðmundur A. Guðmundsson, Náttúrufræðistofnun. Fuglastofnar á Íslandi, ástand og horfur Freydís Vigfúsdóttir, Náttúrufræðistofnun. Sjófuglar í breytilegu umhverfi. Tómas Gunnarson, Háskólasetri Snæfellsness. Búsvæði fugla á Íslandi – sérstaða og framtíð. Einar Ó. Þorleifsson, Fuglavernd. Staða fuglaverndar á Íslandi. Allir velkomnir
|