| Friðaðir fuglar í landi Soldáns Qaboos |
| Þriðjudagur, 25. Mars 2008 00:00 |
|
Ferðasaga frá Óman
Hindhrani © Jóhann Óli Hilmarsson Þriðjudaginn 8. apríl kl. 20:30 mun Jóhann Óli Hilmarsson halda fyrirlestur og myndasýningu frá Óman í salnum Bratta í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð. Aðgangur er öllum opinn og er ókeypis fyrir félaga í Fuglavernd en kostar annars 200 kr. Í nóvember s.l. hélt hópur íslendinga í ferð til furstadæmisins Óman, yst á Arabíuskaganum. Hluti hópsins lagði aðallega stund á fuglaskoðun og sáust um 150 tegundir í ferðinni. Á myndasýnigunni verða sýndar myndir af fuglum og dýrum, fólki og fjöllum, moskum og minjum og mörgu öðru áhugaverðu, sem fyrir augu bar. Soldánsdæmið Óman er um 300.000 km² að stærð og íbúar eru um 2,5 milljónir. Höfuðborgin er Múskat, þar býr um hálf milljón manna og sú næst stærsta er Salalah, syðst í Óman, með 100.000 íbúa. Óman er olíuríki, sem hefur verið á hraðfara siglingu inní nútímann á síðustu áratugum. Ferðamennska hefur þó vart slitið barnsskónum þar. Soldáninn Qaboos bin Said hefur ríkt síðan 1970 og er vinsæll meðal þegna sinna. Fyrir rúmum10 árum bannaði soldáninn allar veiðar á fuglum og spendýrum í landinu. Þar er nú griðastaður fuglaskoðara, en í Óman mætast fuglar frá þremur heimsálfum, Evrópu, Asíu og Afríku. Ein aðalfarleiðin milli Asíu og A-Afríku liggur um Óman. Fuglalistinn er nærri 500 tegundir Í Óman eru hæstu fjöll Arabíuskagans og náttúran er fjölbreytt, frá eyðimörkum til gróðursælla vinja og skóglendis. Í syðsta hluta landsins blása rakir monsúnvindar á sumrin, en norðurhlutinn er þurr og heitur. Leiðsögumaður okkar mestan hluta ferðarinnar var Hanne Eriksen, sem ásamt manni sínum Jens eru meðal þekktustu og virtustu fuglaljósmyndara í Arabaheiminum. Þau eru höfundar helstu fuglabóka um Óman og ysta hluta Arabíuskagans og halda úti vefnum www.birdsoman.com
|









