Dagatal Fuglaverndar

Dagatal Fuglaverndar 2010

 

Fuglavernd gefur út dagatal með úrvali fuglamynda sem voru á sýningu áhugaljósmyndara sem Fuglavernd stóð fyrir í ár.

Hægt er að nálgast dagatalið á skrifstofu Fuglaverndar sem er opin flesta daga fyrir hádegi en dagatalið kostar 2.300,- krónur.

Það eru 12 ljósmyndarar sem eiga myndir í dagatalinu en þeir eru; Hrafn Óskarsson, Ómar Runólfsson, Björn Arnarson, Óskar Andri Eiríksson, Sindri Skúlason, Gyða Hennings, Þórir Niels Kjartansson, Skúli Gunnarsson, Einar Guðmann, Rán Magnúsdóttir, Jakob Sigurðsson og Sigurður Ægisson. Forsíðumyndina á formaður félagsins Jóhann Óli Hilmarsson.

Dagatalið er í stærð A3 og er því stórt og veglegt.

Hægt er að panta dagatalið hér á vefnum. Vinsamlegast fyllið út formið hér fyrir neðan. Við bætist sendingarkostnaður upp á 1.000,- krónur.

Greiðslumáti

Reikningur Fuglaverndarfélagsins hjá Búnaðarbanka Íslands er: 301-26-22994. Kennitala félagsins er: 500770-0159

Til að greiða fyrir dagatal með VISA eða EUROCARD þarf að gefa upp kortanúmer í tölvupósti á netfang félagsins, eða hringja í síma 562 0477.