|
Lífshættir arnarins
Varp og viðkoma Að meðaltali verpa ernir 2 eggjum (1–3) og líða nokkrir daga á milli eggjanna. Ernir fara að liggja á þegar einu eggi er orpið og er álegutíminn um 35 dagar. Fyrstu ungarnir klekjast því um eða upp úr miðjum maí en flestir um mánaðamót maí – júní. Ungarnir eru seinþroska og verða ekki fleygir fyrr en 10 vikna gamlir, þ.e. í ágúst. Varptími arnarins er því mjög langur eða 5-6 mánuðir.
Verpa snemma Ernir halda til á varpstöðvunum árið um kring og í venjulegu árferði fara þeir að hyggja snemma að varpi, stundum jafnvel í lok febrúar en oftar um miðjan mars. Ernir parast yfir lífstíð og þegar annar fuglinn fellur frá getur það tekið þann sem eftir lifir nokkurn tíma að finna sér nýjan maka. Þess vegna verður stundum hlé á arnarvarpi á hefðbundnum varpstöðum um nokkurra ára skeið.
Vorhret seinka stundum varpi og fyrir kemur að arnarvarp misferst að mestu leyti í kuldatíð, eins og harðindavorið alræmda 1979. Biðilsleikir arna eru tilkomumikil sjón sem sjaldan ber fyrir augu, því ernirnir iðka þessa fluglistir aðeins í stuttan tíma áður en varp hefst.
Hreiðrið Ernir byggja stundum stóra og mikla laupa úr kvistum. Oftar er hreiðurgerðin þó viðaminni, einkum þar sem ernir hreiðra um sig í sjávarhólmum. Á slíkum stöðum verpa fuglarnir iðulega í ólögulega hrúgu af hvann- og þangdrjólum.

Hreiður í sjávarhólma - Ljósmynd © Daníel Bergmann
|